Reynir, ráðgjafastofa
Aðalsíða  /  Pistillinn

Tilgangurinn með þessari síðu er að miðla ýmsum fróðleik og þekkingu. Munum við skrifa um ýmis málefni sem tengjast starfseminni sem og nýjungum í þeim fræðum. Jafnframt langar okkur að setja fram ýmsan annan fróðleik sem tengist frístunda- og áhugamálum okkar s.s. veiðiferðum og öðrum áhugamálum. Markmiðið með slíku er að styðja fólk í að njóta lífsins og uppgvöta lífsins lystisemdir.

Lmi á skákborði

Fjölskyldan 10

 


Sálfræðin og stjórnunarfræðin

Margir hafa spurt okkur sem hér starfa hvernig í ósköpunum getur það farið saman að blanda saman sálfræði, félagsfræði og stjórnunarfræðum og nýta sér þá blöndu til ráðgjafar, námskeiðahalds og framþróunar viðskiptavina okkar?  

Í sem stystu máli er því til að svara að stjórnun - hvaða nafni sem hún nefnist, fjármálastjórun, verkefnastjórnun, framleiðslustjórnun, þjónustustjórnun, framboð þjónustu, stjórnmál, tölvustjórnun og viðhald, stjórnun véla og tækja og hvers kyns önnur stjórnun snýst um að ná því besta fram í fólki svo það geti stýrt sínum hlutverkum á sem bestan hátt. Stjórnun er því sá galdur að gera fólki kleift að blómstra sem fagfólk og sem persónur. Slíkt verður ekki gert nema þekkja mannlegt eðli. Eðli okkar allra er að ná árangri og þroskast sem persónur. Þar kemur sálfræðin inn sem sterkt vopn og tæki til að töfra fram alla bestu eiginleika einstaklingsins. Fyrirtæki og stofnanir eru félagsleg fyrirbæri og því nauðsynlegt að þekkja samskipti einstaklinga við þær aðstæður sem einkenna fyrirtæki og stofnanir.

Þannig spila þessar þrjár fræðigreinar saman og marka sín spor í samfélag nútímans, jafnvel án þess að því sé veitt nægileg athygli að mínu mati og vonandi sér einhver fræðimaður eða nemandi á þessum sviðum tækifæri til rannsókna á samspili þessara fræðigreina.

Arinbjörn Kúld

 

 

 

 

 

Til baka

 

 

Markmið Reynis-ráðgjafastofu er að efla fólk í að uppgötva og nýta meira af hæfileikum sinum.

LMI

Stig af stigi

 

Reynir- ráðgjafastofa, KMM ehf. - Tryggvabraut 22,2h - 600 Akureyri
Sími 460-9500  - Netfang: reynismenn@reynismenn.is