Fréttir Reynismenn | 12. september 2006 - kl. 11:28 Tilboð um námskeið veturinn 2006-7 Nú liggja fyrir námskeiðstilboð Reynis-ráðgjafastofu á komandi vetri.
Eins og áður er lögð megináhersla á námskeið um samskipti, tjáskipti, stjórnun og samvinnu.
Tíu þessara námskeiða eru tímasett og skipulögð í samvinnu við SÍMEY-Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (sjá námsskrá í SÍMEY eða á www.simey.is), önnur eru opin tilboð, ótímasett, en standa til boða fyrirtækjum, stofnunum eða félögum sem óska eftir fræðslu. Hægt er að aðlaga áherslur og lengd þeirra námskeiða sem ekki eru tímasett að þörfum þeirra sem óska eftir námskeiðinu. |